Fara í efni

SAFS1EU02Z - Samfélagsfræði með áherslu á Evrópu og umheiminn

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Markmið áfangans er að nemandi kynnist löndum Evrópu, hvernig samfélög og menning þessara landa eru. Að nemendur átti sig á lifnaðarháttum annarra þjóða og hvað er líkt og ólíkt með löndum Evrópu. Skoðaðir verða ýmsir þættir eins og lega landa, landslag, atvinnuvegir og félagslegir þættir.

MARKMIÐ:

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Evrópu og umheiminum
  • löndum í Evrópu
  • lifnaðarháttum og atvinnuvegum í öðrum löndum Evrópu
  • að nemendur skilji hugtök eins og ríki, land, þjóð, landamæri, tungumál

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • afla sér upplýsinga um Evrópu og umheiminn
  • að bera saman ólíkar þjóðir
  • skoða lifnaðarhætti, venjur og siði á Íslandi miðað við aðrar þjóðir

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vera meðvitaður um Evrópu og heiminn.
  • geta notað landakort til að afla sér upplýsinga
  • vita hvaða álfu Ísland tilheyri og hvaða fleiri lönd tilheyra henni
  • gera sér grein fyrir mismunandi menningu þjóða, tungumálum, siðum, mat og fleira
Getum við bætt efni síðunnar?