Fara í efni

ROGV2AO03 - Rekstrartækni

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Farið er í rekstrar- og starfsumhverfi fyrirtækja og þætti sem snúa að rekstri fyrirtækja og einstaklinga. Grunnatriði bókhalds og bókfærslu verða gerð skil. Fjallað er um grunnatriði gæðastjórnunar og hver munurinn er á gæðakerfi eftir ákveðnum staðli eða eigin kerfi. Áhersla á að þekkja muninn á að marka stefnu og setja markmið og hvernig þessi hugtök tvinnast saman.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • Rekstri fyrirtækja.
  • Rekstri einstaklinga.
  • Mismunandi félagaformum.
  • Grunnþáttum bókfærslu og reglum um bókhald.
  • Grunnatriðum í lánamálum og hugtökunum höfuðstóll og vextir.
  • Álagningu, framlegð og kostnaðarútreikningum.
  • Gæðastjórnun og gæðakerfum.
  • Stefnumörkun og markmiðasetningu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • Greina á milli félagaforma í rekstri.
  • Vinna með grunnatriði bókhalds.
  • Lesa úr og útskýra launaseðla.
  • Útskýra muninn á því að vera launþegi og verktaki.
  • Útskýra kostnaðaráætlun og kostnaðarútreikning.
  • Útskýra hvað felst í gæðastjórnun.
  • Átta sig á mismunandi gæðakerfum.
  • Útskýra hugtökin stefnumörkun og markmiðasetning og hvernig þau tvinnast saman.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • Færa einfalt bókhald fyrir fyrirtæki eða einstakling.
  • Gera launaútreikninga.
  • Gefa út reikninga fyrir verktakagreiðslum.
  • Setja upp kostnaðaráætlun og reikna út álagningu og framlegð.
  • Gera kostnaðarútreikning.
  • Gera einfalda lánaútreikninga og nýta sér lánareiknivélar bankanna.
  • Vinna út frá gæðastjórnun og velja gæðastjórnunarkerfi.
  • Átta sig á muninum á stefnu og markmiði og hvernig á að marka stefnu og setja sér markmið í fyrirtækjarekstri.
Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.
Getum við bætt efni síðunnar?