RABV4AO05 - Rafmagn – bilanagreining rafbúnaðar
Undanfari : RABV3BO05
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Fjallað er um mismunandi gerðir bilana í rafbúnaði/-rásum. Farið er yfir skipulag og framkvæmd bilanagreininga. Unnin eru verkefni í skipulagi og framkvæmd bilanagreininga í raf- og rafeindabúnaði. Áhersla er á nákvæmt skipulag, notkun mælitækja, mat á niðurstöðum mælinga og notkun tækniupplýsinga.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Mikilvægi skiplags við bilanagreiningar.
- Gerð skipulags fyrir bilanagreiningu.
- Notkun mælitækja við bilanagreiningar.
- Niðurstöðum mælinga í raf- og rafeindabúnaði.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Útskýra mikilvægi skipulags bilanagreininga.
- Framkvæma bilanagreiningar í raf- og rafeindabúnaði á skipulagðan hátt.
- Nota viðeigandi mælitæki og tækniupplýsingar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Framkvæma bilanagreiningar á raf- og rafeindabúnaði á skipulagðan hátt.
- Gera við bilanir á öruggan hátt.
Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.