Fara í efni

RABV3CO05 - Rafmagn – rafeindatækni

Undanfari : RABV3BO05
Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Fjallað er um uppbyggingu og virkni á ýmsum rafeindastjórnkerfum, virkni mismunandi skynjara, hreyfiliða og annarra íhluta. Skoðuð eru margskonar merki frá skynjurum og stjórnmerki hreyfiliða. Hannaður og smíðaður er einfaldur stjórnbúnaður sem nýtir mismunandi hálfleiðara. Farið er í virkni netkerfa og samskipti stjórntölva. Unnin eru verkefni í bilanagreiningu, notkun mælitækja og mati á niðurstöðum mælinga. Áhersla er lögð á notkun mælitækja og tækniupplýsinga, og mat á niðurstöðum mælinga.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • Virkni helstu íhluta í rafeindabúnaði.
  • Merki helstu skynjara í rafeindabúnaði.
  • Merki helstu hreyfiliða í rafeindabúnaði.
  • Virkni og hlutverk helstu netkerfa í bílum.
  • Helstu aðferðum og mælitækjum við bilanagreiningu í rafeindabúnaði.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • Útskýra virkni margs konar rafeindabúnaðar í bílum.
  • Útskýra virkni og notkun netkerfa í bílum.
  • Hanna og smíða einfaldan rafeindastjórnbúnað.
  • Framkvæma mælingar og bilanagreiningar í margs konar rafeindabúnaði.
  • Nota viðeigandi mælitæki og tækniupplýsingar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • Útskýra virkni margs konar rafeindastjórnbúnaðar í bílum.
  • Útskýra virkni og notkun netkerfa í bílum.
  • Framkvæma mælingar og mat á niðurstöðum mælinga á rafeindabúnaði.
  • Framkvæma öruggar og hagkvæmar viðgerðir á rafeindabúnaði.
Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.
Getum við bætt efni síðunnar?