Fara í efni

RABV3BO05 - Rafmagn – ýmiss rafbúnaður

Undanfari : RABV2BO05
Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Fjallað er um uppbyggingu og virkni á ýmsum rafbúnaði, svo sem ljósa-, öryggis- og þægindabúnaði. Framkvæmdar eru bilanagreiningar og viðgerðir á búnaðinum. Áhersla er lögð á notkun mælitækja og tækniupplýsinga, og mat á niðurstöðum mælinga.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • Virkni mismunandi ljósa-, öryggis- og þægindabúnaðar.
  • Virkni helstu íhluta.
  • Helstu aðferðum og mælitækjum við bilanagreiningu.
  • Helstu aðferðum og tækjum við viðgerðir og stillingar á íhlutum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • Útskýra virkni mismunandi ljósa-, öryggis- og þægindabúnaðar.
  • Framkvæma bilanagreiningu/viðgerðir á mismunandi ljósa-, öryggis- og þægindabúnaði.
  • Nota viðeigandi mælitæki og tækniupplýsingar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • Bilanagreina og lagfæra helstu íhluti/þætti ljósa- , öryggis- og þægindabúnaðar.
  • Útskýra virkni ljósa- , öryggis- og þægindabúnaðar, og helstu orsakir bilana.
Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.
Getum við bætt efni síðunnar?