RABV3AO05 - Rafmagn – ræsi- og hleðslukerfi
Undanfari : RABV2BO05
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Farið er í uppbyggingu og virkni mismunandi ræsi- og hleðslukerfa í bensín- og dísilbílum. Framkvæmdar eru bilanagreiningar og viðgerðir á kerfunum og íhlutum. Áhersla er á notkun mælitækja og tækniupplýsinga og mat á niðurstöðum mælinga.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Virkni ræsi- og hleðslukerfa.
- Virkni helstu íhluta.
- Helstu aðferðum og mælitækjum við bilanagreiningu.
- Helstu aðferðum og tækjum við viðgerðir á íhlutum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Útskýra virkni ræsi- og hleðslukerfa.
- Framkvæma bilanagreiningu og viðgerðir á ræsi- og hleðslukerfum.
- Nota viðeigandi mælitæki og tækniupplýsingar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Bilanagreina og lagfæra ræsi- og hleðslukerfi.
- Útskýra virkni ræsi- og hleðslukerfa og helstu orsakir bilana.