NETV2RE05A - Nettækni og miðlun
Lýsing
Fjallað er um uppbyggingu og virkni staðarneta (LAN) , víðneta ( WAN ) og rauntímaneta með uppsetningu, viðhald og þjónustu í huga. Farið er nákvæmlega í OSI-módelið og unnin verkefni með hjálp ýmissa netgreiningaforrita ásamt því að kennd og æfð er sú tækni sem notuð er við bilanaleit á staðar og víðnetum. Æfðar eru uppsetningar á netbúnaði, netþjónustum, netkortum, kapallögnum, svissum og beinum og hvernig villur í uppsetningum lýsa sér ásamt lausn þeirra með hjálp netgreiningaforrita. Lögð er áhersla á net og margmiðlunarþjónustur heimila og minni fyrirtækja. Í lok þessa áfanga þekkir nemandinn uppbyggingu og virkni þessara neta, ásamt því að kunna skil á þeim búnaði sem notaður er við bilanaleit á netum og helstu aðferðum við bilanaleit.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
- LAN netum og WAN netum
- rauntímaneti
- hugbúnaði til greiningar á netumferð
- samskiptareglum og netþjónustum
- netkerfum heimili og minni fyrirtækja
Leikniviðmið
- greina netkerfi með þar til gerðum verkfærum og hugbúnaði
- setja upp netbúnað með kortum, lögnum, svissum og beinum.
- setja upp einfalt CAN netkerfi
Hæfniviðmið
- þróa og setja upp lítið staðarkerfi (LAN)
- setja upp (WAN) kerfi
- þróa og setja upp rauntíma netkerfi
- beita hugbúnaði til bilanagreiningar