Fara í efni

NÁSS1SN02Z - Náms- og starfskynning

Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum gefst nemandanum kostur á að kynnast ýmsu verklegu í skólanum og kynnist vinnubrögðum sem nýtast honum í daglegu lífi s.s. bakstri, eldamennsku og notkun einfaldra verkfæra. Að auki fær nemandinn svigrúm til sköpunar í gegnum hefðbundin listform, stafræna hönnun og hreyfingu.

Leitast er við að nemandinn finni styrkleika sína og öðlist sjálfstraust til að sinna ólíkum verkefnum og finni áhugasvið sitt í gegnum fjölbreytt nám.

MARKMIÐ:

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • Ýmsum verknámsáföngum innan VMA
  • grunnatriðum sem snúa að öryggi við hina ýmsu verklegu þætti
  • réttum vinnustellingum

Leikniviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita einföldum verkfærum/áhöldum
  • bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum í því verklega umhverfi sem hann er staddur í hverju sinni
  • greina styrkleika sína og tengja áhugasvið sitt við nám
  • setja sig í spor annarra, sýna umburðarlyndi og samhygð

Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • stunda ánægjulegra nám á framhaldskólastigi
  • hafa meira sjálfstraust og leikni við hina ýmsu verklegu og skapandi þætti
  • ganga vel um verklega aðstöðu m.t.t. öryggis og frágangs
  • bæta eigin vinnubrögð og samstarf við aðra
Getum við bætt efni síðunnar?