Fara í efni

NÁLÆ1SA02Z - Náttúrulæsi með áherslu á alheiminn og undur hans

Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Markmið áfangans að nemandinn kynnist jörðinni, sólkerfinu og alheiminum. Lögð er áhersla á að nemendur kynnist samspili manns og náttúru og hvernig mannlegar athafnir hafa áhrif á allt lífríki jarðar.

Markmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: 

  • jörðinni, bygginguhennarogeiginleikum
  • sólkerfið, stjörnuþokur og önnur undur alheimsins
  • áhrifummannsins á náttúruna

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að: 

  • afla sér upplýsinga um jörðina gerð hennar og eiginleika
  • afla sér upplýsinga um sólkerfið, stjörnurnar og alheiminn
  • skiljasampilmannsognáttúru
  • lesamyndrit og kort af ýmsutagi

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: 

  • vera meðvitaður um jörðina, gerð hennar og eiginleika, sólkerfið og alheiminn
  • bera virðingu fyrir umhverfi sínu og náttúru
  • bera virðingu fyrir skoðunum og lífsgildum annarra
Getum við bætt efni síðunnar?