NÁLÆ1ML02Z - Náttúrulæsi með áherslu á mannslíkamann
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Markmið áfangans er að nemandinn kynnist starfsemi líkamans. Þekki helstu líffærin og líffærakerfin, hvar þau eru staðsett og hvaða hlutverkum þau gegna í mannslíkamanum. Þekki einnig sjúkdóma og kvilla sem herjað geta á viðkomandi líffæri. Geri sér grein fyrir áhrifum fæðu, efna, umhverfis og annarra þátta á líffærakerfin og líkaman og þannig verða meðvituð um heilbrigða lifnaðarhætti
Markmið:
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mannslíkamanum, helstu líffærakerfum og líffærum
- áhrifum mismunandi fæðu, efna og annars slíks á virkni líffæra
- áhrifum utanaðkomandi umhverfis á líkamann og helstu kvilla
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- afla sér upplýsinga um mannslíkamann
- þekkja starfsemi og virkni helstu líffæra – og líffærakerfa
- afla sér upplýsinga og þekkja sjúkdóma og áhrif ýmissa utanaðkomandi þátta á líkamann
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vera meðvitaður um virkni og starfsemi líkamans og hvað hefur áhrif þar á
- vera meðvitaður og þekkja starfsemi helstu líffæra – og líffærakerfa
- vera meðvitaður um utanaðkomandi áhrif, helstu sjúkdóma og kvilla sem herjað geta á mannslíkamann og líffærakerfi hans
- vera meðvitaður um ástand eigin líkama og atgervis