Fara í efni

NÁLÆ1ML02S - Náttúrulæsi með áherslu á mannslíkamann

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Áfangalýsing:

Markmið áfangans er að nemandinn kynnist starfsemi líkamans. Farið er í ólík líffærakerfi, tilgang og starfsemi þeirra. Ýmsa þætti eins og svefn, hungur, og fleira. Skoðum skynfærin, veltum fyrir okkur ólíkri skynjun og truflanir á henni. Farið í áhrif utanaðkomandi þátta á líkamann og starfsemi hans.

Markmið:

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ólíkum kerfum mannslíkamans
  • helstu skynfærum og starfsemi þeirra
  • tilgangi og starfsemi ólíkra líffærakerfa
  • svefni og helstu þáttum sem hafa áhrif á hann

 

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • afla sér upplýsinga um mannslíkamann
  • vinna með og nota hugtök líffræðinnar
  • vinna sjálfstætt og í hópi

 

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vera meðvitaður um mannslíkamann
  • átta sig á ytri þáttum sem hafa áhrif á líkamann og almenna heilsu
  • átta sig á mikilvægi svefns og heilbrigðs lífernis
  • nýta þekkinguna til að efla eigin heilsu
Getum við bætt efni síðunnar?