Fara í efni

NÁLÆ1LÍ03S - Náttúrulæsi 2 á starfsbraut

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Áfangalýsing:

Í áfanganum er áhersla á að nemendur auki þekkingu og skilning á umhverfi sínu og hvernig samspil manns og náttúru birtist okkur í daglegu lífi. Nemendur eiga að þjálfast í að nota upplýsingar á gagnrýninn hátt. Nemendur skulu kynnast grunnþáttum og hugtökum náttúruvísindagreina. Þeir eiga þroska með sér vitund á vistkerfum, áhrifum erfða á manninn og hvaða áhrif maðurinn hefur á þróun dýra og plantna.

Markmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • nánasta umhverfi sínu
  • áhrifum mannsins á náttúruna
  • helstu hugtökum náttúruvísinda
  • mikilvægi sjálfbærni í samfélagi sínu
  • helstu tegundum dýra og plantna

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa og skilja texta, myndrit og kort af ýmsu tagi
  • afla sér upplýsinga um umhverfi sitt
  • meta upplýsingar á gagnrýninn hátt
  • skilja samspil manns og náttúru
  • miðla upplýsingum og skoðunum í ræðu og riti

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • bera virðingu fyrir skoðunum og lífsgildum annarra
  • vera virkur og ábyrgur þátttakandi í lýðræðissamfélagi
  • vera meðvitaður um margvíslegar auðlindir náttúrunnar
  • skilja hvernig vistkerfi jarðar setur manninum takmarkanir
  • meta gildi upplýsinga um umhverfi og náttúru á gagnrýninn hátt
  • bera virðingu fyrir umhverfi sínu og náttúru
  • nýta sér margvíslega tækni í þekkingarleit
  • þekkja stöðu Íslands í umhverfismálum
Getum við bætt efni síðunnar?