NÁLÆ1DP02Z - Náttúrulæsi með áherslu á dýr og plöntur
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Markmið áfangans er að nemandinn kynnist fuglum, dýrum og plöntum á Íslandi og í heiminum.Lögð er áhersla á þekkingu og skilning á umhverfinu, náttúrunni og því sem í henni býr. Nemendur kynnast hvernig einstaklingurinn tengist umhverfi sínu og getur haft áhrif á það, einnig er fjallað um útbreiðslu fugla, dýrategunda og plantna.
Markmið: Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ýmsum fugla- dýra- og plöntutegundum
- umhverfinu og tengslum þess við einstaklinginn
- áhrifum einstaklingsins á náttúruna og dýralífið
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- afla upplýsinga um fugla, dýr og plöntur á margvíslegan hátt
- afla upplýsinga um umhverfið
- átta sig á samspili einstaklinga við náttúruna, fuglana, dýrin og plönturnar
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vera meðvitaður um alls konar fugla, dýr og plöntur
- bera virðingu fyrir fuglum, dýrum, plöntum og náttúrunni
- nýta sér tækni í þekkingarleit og meta upplýsingarnar á gagnrýnin hátt