MYNL3TS05 - TEIKNING OG SKÖPUN
Lýsing
Nemandinn þjálfar sig í að beita myndbyggingu, teikningu og meðferð lita í tjáningu eigin hugmynda. Nemandinn dýpkar skilning og tilfinningu fyrir samspili lita og forma í myndbyggingu og kynnist merkingar- og táknfræði þeirra.Hann vinnur markvisst á fjölbreyttan hátt með mismunandi efni, áhöld og aðferðir. Hann þjálfast í hugmynda-, rannsóknar- og tilraunavinnu og skoðar möguleika í þróunarvinnu til frekari útfærslu á myndverki.Nemandinn skoðar og greinir eigin verk og annarra með tilliti til myndbyggingar, litameðferðar, stílbrigða og innihalds. Samhliða vinnu áfangans skoðar og metur nemandinn vinnu sína og ferli jafnt og þétt.
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- markvissri þróunarvinnu í sköpunarferli
- hvernig myndbygging, efni og aðferðir hafa áhrif á merkinguog útkomu
- hvernig táknfræði lita, lína og forma hafa áhrif á merkingu myndverka
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- þróa verk sín með markvissri hugmynda-, tilrauna- og skissuvinnu
- nota form, birtu, skugga, áferð og liti á fjölbreyttan og tjáningarríkan hátt og nota táknfræði til að auka áhrif í myndverki
- beita markvisst margskonar efnum, áhöldum og aðferðum í teikningu og litameðferð
- greina myndverk og fjalla um þau á greinargóðan hátt út frá sjónrænum forsendum myndbyggingar
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tileinka sér mismunandi aðferðir við hugmyndavinnu og skapa myndverk út frá markvissu þróunarferli
- nýta táknfræði, myndbyggingu, liti, form og mismunandi aðferðir í teikningu og litameðferð í vinnslu eiginverka
- meta og fjalla um vinnuferli og eigin verk og tjá sig á upplýstan og greinargóðan hátt út frá sjónrænum þáttum myndbyggingar og formfræði
- setja fram verkefni sín á skapandi og skipulegan hátt