MYNL3IG05 - Innsetningar og gjörningar
Lýsing
Nemandinn vinnur með listformin innsetningaverk og gjörningalist auk þess að kanna tengsl þeirra við sviðslistir. Nemandinn fær þjálfun í að vinna með rými, tíma og líkama og þróar eigin verk með fjölbreyttum miðlum listformanna. Áhersla er á skapandi hugmyndavinnu, tilraunir, skráningu ferlis og gagnrýna umræðu. Nemandinn kynnist og kynnir sér verk listamanna sem vinna rýmistengd verk. Hann ígrundar verk sín í samvinnu við kennara og samnemendur. Hluti námsins fer fram í tengslum við valda list- og menningarviðburði í nærumhverfinu.
Þekkingarviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hugtökum sem tengjast innsetningarverkum og gjörningalist
- þekki listamenn sem vinna með þessa miðla og stöðu þeirra innan samtímalistar
- tengslum myndlistar og sviðslista í víðu samhengi
- möguleikum varðandi notkun margvíslegra miðla í rýmisverkum
- grunnlögmálum í vinnu með tímatengda miðla í listrænni framsetningu
Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- þróa og útfæra hugmyndir fyrir innsetningarverk og gjörninga með markvissum hætti
- nýta fjölbreytta miðla, t.d. ljós, hljóð, líkama, rödd og hreyfingu í vinnu með rými
- þróa samsköpunarverk verk í tengslum við sviðslistir
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta sköpun, ímyndunarafl, innsæi og tilfinningar við þróun hugmynda
- skapa innsetningarverk og gjörninga sem byggja á meðvitaðri rannsókn á rými og tíma
- sýna áræðni og frumkvæði við útfærslu rýmistengdra verka
- taka þátt í gagnrýninni og fræðilegri umræðu um innsetningarverk og gjörninga og tengja við samtímalist