Fara í efni

MLSU1PL03 - Málmsuða pípulagna

Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum læra nemendur logsuðu og kynnast rafsuðu og hlífðargassuðu. Einnig læra þeir að lóða eirrör með mismunandi blöndum. Lögð er áhersla á meðferð logsuðutækja og öryggisreglur þar að lútandi. Kennslan er aðallega verkleg.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • rafsuðuvélum og stillingu suðustraums.
  • vírum sem notaðir eru við rafsuðu og hlífðargassuðu.
  • grunnreglum fyrir lóðningu með silfri, tini og fosfórblöndu.
  • umgengni og öryggisreglum varðandi gashylki og suðutæki.
  • sprengihættu sem stafar af gasi og súrefni.
  • nauðsyn brunavarna við suðuvinnu málma.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • setja upp hylki, slöngur og sköft.
  • stilla réttan vinnuþrýsting.
  • velja suðuspíssa út frá efnisþykkt.
  • sjóða 1-3 mm plötur og rör í suðustöðum PA og PC.
  • lóða eirlagnir með silfur/tinblöndum eða forfórslaglóði.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • logsjóða plötur og rör.
  • lóða eirrör með mismunandi blöndum.
  • beita reglum um meðferð gass, súrefniskúta og logsuðutækja.
  • meta og bregðast við nauðsyn brunavarna við suðuvinnu málma.
Símat og verkefnaskil
Getum við bætt efni síðunnar?