MARG1HM05 - Margmiðlun 1 - Hreyfimyndagerð, hljóðvinnsla, myndvinnsla, stafræn ljósmyndun og upptaka
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Nemendur kynnast grunnatriðum í myndvinnslu, hreyfimyndagerð, hljóðvinnslu og auka skilning sinn á stafrænni ljósmyndun og upptökutækni. Áhersla er lögð á að nemendur kynnist forritum og fjölbreyttum möguleikum þeirra sem hægt er að nýta við úrvinnslu skapandi verka sem byggja á stafrænni tækni. Nemendur kynnast lagskiptri myndvinnslu, lýsingar- og litaleiðréttingu. Þá vinna nemendur með klippiforrit við klippingu á eigin efni en gera jafnframt fjölbreyttar tilraunir með fundið efni t.d. af netinu.
Markmið:
Þekking: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- klippiforritum og stafrænum miðlum fyrir myndband og hljóð
- vinnuferli við gerð myndbands- og hljóðverka
- grunnatriðum í stafrænni myndvinnslu
- grunnatriðum í stafrænni ljósmyndun og upptökutækni
- grunnatriðum í myndvinnslu og möguleikum myndvinnsluforrita
Leikni: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skipuleggja, taka upp og klippa tímatengda miðla og ganga frá til sýningar í viðeigandi forriti
- taka stafrænar ljósmyndir og vinna með þær í myndvinnsluforritum
- velja viðeigandi forrit til að setja verkefni sín fram
Hæfni: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vinna á sjálfstæðan og skapandi hátt með margvísleg forrit við vinnslu og framsetningu á eigin hugmyndum og verkum
- fullvinna verk með viðeigandi hætti með tilliti til þess á hvaða formi verkið skal birt