Fara í efni

LOVE1ST02S - Lokaverkefni starfsbrautar

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Áfangalýsing:

Í áfanganum vinnur nemandi á síðasta námsári að ýmsum verkefnum sem dýpka eigin þekkingu og færni að miðla viðfangsefnum eftir áhugasviði. Unnið er sérstakt lokaverkefni í áfanga og er framsetning og útfærsla þess fjölbreytt. Áfanga líkur á þátttöku í lokaverkerkefnissýningu þar sem nemendur kynna eigið verkefni. Nemandi fylgist með eigin vinnu og frammistöðu í gegnum önnina í samvinnu við kennara og nemendahóp. Nemandi tekur þátt í sameiginlegum verkefnum hópsins sem og að undirbúa og setja upp lokaverkefnisdaginn á vegum hópsins.

 

Markmið:

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • tilteknum viðfangsefnum sem hann hefur valið sér
  • mikilvægi afmörkunar í efnisvali
  • mikilvægi skipulags og vinnubragða í verkefnavinnu
  • hvernig setja eigi upp stærri sameiginleg verkefni eða sýningu


Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • setja fram hugmyndir á ólíkan hátt
  • vinna með eigin hugmyndir og áhugamál og miðla til annarra
  • skrásetja eigin vinnu og ígrunda hana

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • undirbúa og setja upp sýningu
  • tjá sig um eigin hugðarefni og annarra
  • taka þátt í samræðum um fjölbreytt viðfangsefni
  • vinna í hópi mismunandi nemenda
Getum við bætt efni síðunnar?