LOVE1SN02Z - Lokaverkefni sérnámsbrautar
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Áfanginn er tekinn á síðasta námsári nemanda. Í áfanganum vinnur nemandi að ýmsum verkefnum sem m.a. tengjast skólalokum og/eða uppgjöri á eigin námi við VMA. Nemendur hafa tækifæri til að vinna með eigin áhugamál og miðla til annarra nemenda eftir aðstæðum. Unnið er sérstakt lokaverkefni í áfanganum og er framsetning og útfærsla fjölbreytt. Nemandi tekur þátt í sameiginlegri lokaverkefnissýningu og aðstoðar við undirbúning og uppsetningu.
Markmið
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- tilteknum viðfangsefnum sem lögð eru fyrir og valin í samráði við nemendur
- eigin áhugamálum og styrkleikum
- mikilvægi afmörkunar og skipulagðra vinnubragða í verkefnavinnu
- hvernig setja má upp stærri sameiginlega sýningu
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna með eigin hugmyndir og skoðanir
- vinna með áhugamál og miðla þeim til annarra
- taka þátt í samtölum um ólík hugðarefni ólíkra nemenda
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- undirbúa og setja upp sýningu
- tjá sig um eigin hugðarefni og annarra
- vinna með áhugamál og gera þeim skil á ólíka vegu
- vinna í hópi með öðrum nemendum