Fara í efni

LOKA3PL03 - Lokaverkefni í pípulögnum

Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum vinna nemendur verkefni sem felur í sér samþættingu þekkingar og færni sem aflað hefur verið í skóla og á vinnustað á námstímanum. Áhersla er lögð á skipulagningu, framkvæmd, eftirlit, skráningu og rökstuðning en að öðru leyti er ekki um að ræða fyrirfram ákveðna verkþætti. Reynt er að líkja eftir aðstæðum í atvinnulífinu og hafa nemendur aðgang að öllum fyrirliggjandi gögnum, efni, áhöldum og tækjum meðan á verkefninu stendur. Um er að ræða undirbúning fyrir verklegan hluta sveinsprófs í pipulögnum. Þar sem verkefninu er ætlað að endurspegla raunverulegar aðstæður er æskilegt að tíminn sem ætlaður er, dreifist ekki á langt tímabil.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • verkáætlunum og afmörkuðum hönnunargögnum.
  • efnis- og kostnaðaráætlunum.
  • áhöldum og tækjum fyrir einstaka verkþætti.
  • upplýsingum um útfærslur, efni, áhöld og tæki.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • fylgja verkáætlun og hönnunargögnum.
  • vinna í samræmi við áætlanir um tíma og kostnað.
  • vinna í samræmi við lög, reglugerðir og staðla.
  • vinna í samræmi við gæðakröfur og viðurkennt verklag.
  • vinna í samræmi við öryggisreglur og –búnað.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • rökstyðja val á aðferðum, efni, áhöldum og tækjum.
  • gera grein fyrir efnisafföllum og frávikum frá kostnaðaráætlun.
  • leggja mat á verkáætlun og hönnunargögn vegna verksins.
  • meta gæði verks með hliðsjón af lögum, reglugerðum og stöðlum.
  • gera grein fyrir notkun og viðhaldi á áhöldum og tækjum.
Símat og verkefnaskil
Getum við bætt efni síðunnar?