LOKA3MS04 - Lokaverkefni í vélstjórn
Lýsing
Í áfanganum vinna nemendur verkefni sem felur í sér samþættingu þekkingar og færni sem aflað hefur verið í skóla og vinnustað
á námstímanum. Áhersla er lögð á skipulagningu, framkvæmd, eftirlit, skráningu og rökstuðning en að öðru leyti er ekki um að
ræða fyrirfram ákveðna verkþætti. Kennslan er fólgin í leiðbeiningu og tilsögn við vinnu lokaverkefnis.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
• verkáætlun og afmörkuðum hönnunargögnum
• efnis- og kostnaðaráætlun
• áhöldum og tækjum fyrir einstaka verkþætti
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
• fylgja fyrirliggjandi verkáætlun og hönnunargögnum
• vinna í samræmi við áætlanir um tíma og kostnað
• vinna í samræmi við lög, reglugerðir og staðla
• vinna með hliðsjón af gæðakröfum og viðurkenndu verklagi
• vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
• rökstyðja val á aðferðum, efnum, áhöldum og tækjum
• útskýra efnisafföll og frávik frá kostnaðaráætlun
• leggja mat á verkáætlun og hönnunargögn vegna verksins
• meta gæði verks með hliðsjón af lögum, reglugerðum og stöðlum
• útskýra notkun og viðhald á áhöldum og tækjum
• afla sér upplýsinga um útfærslur, efni, áhöld og tæki
Námsmat
Námsmat er skilgreint í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá og nánar útfært í verklagsreglum skólans sem birtar eru í
gæðahandbók.