Litun og þrykk - HÖTE2ET05
Lýsing
Nemandinn kynnist fjölbreyttum efnum, aðferðum, áhöldum auk tölvutækni sem tengjast taulitun, taumálun, tauþrykki og munsturgerð. Lögð er áhersla á að nemandinn auki við færni í að þróa hugmyndir sínar í tengslum við munsturgerð og litun efnis og garns. Nemandinn eykur við þekkingu sína á ólíkum vefjarefnum og litar- og hjálparefnum í tengslum við verkefnavinnu. Þá kynnist nemandinn verkum listamanna og hönnuða sem vinna með litun, þrykk og/eða munsturgerð. Nemandinn skrásetur vinnuferli sitt, setur það fram með skipulögðum hætti og ígrundar verk sín í samvinnu við kennara og samnemendur.
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- eiginleikum helstu vefjarefna og hvaða áhrif þeir hafa á möguleika til litunar og þrykks
- ólíkum tauþrykks og -litunaraðferðum og hjálparefnum sem þeim tengjast
- grunnhugtökum taulitunar og -þrykks
- muninum á tengdu og ótengdu símunstri og hvernig þau eru undirbúin fyrir þrykk.
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Lita og þrykkja ólík vefjarefni
- velja litar- eða þrykkefni og aðferðir sem henta hverju sinni.
- Nýta eigin hugmyndir og beita tölvutækni við munsturgerð
- Vinna eftir ferli þar sem eitt vinnslustig tekur við af öðru
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Þróa eigin hugmyndir á sjálfstæðan hátt með rannsóknar- og skissuvinnu.
- Velja viðeigandi efni og aðferðir til að breyta lit og yfirborði vefjarefna út frá eigin hugmyndum og geta rökstutt ákvarðanir með tilliti til faglegrar þekkingar.
- Nýta umhverfi sitt, fjölbreyttar kveikjur og verk listamanna og hönnuða sem innblástur fyrir eigin verk.
- ígrunda og ræða um verk sín og vinnuferli í samvinnu við kennara og samnemendurog setja eigin verk fram til kynningar á skýran hátt.