Fara í efni

LISA3PÓ05 - Lista- og hönnunarsaga: Póstmódernismi 1920-70/80

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Nemandinn kynnir sér þróun alþjóðlegrar myndlistar og hönnunar á tímum póstmódernismans og þá strauma og stefnur sem liggja að baki. Hann skoðar sérstöðu íslenskrar listar og hönnunar í því samhengi. Hann skoðar og greinir átök sem komu upp milli módernisma og nýlistar við upphaf hennar. Nemandinn kynnist helstu verkum tímabilsins, hugmyndum sem hafna tvíhyggju og aðgreiningu hámenningar og lágmenningar. Hann eflir skilning sinn á áhrifum þessa tímabils á þróun myndlistar og hönnunar.

 

Þekkingarviðmið 

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: 

  • helstustefnum, einkennum og hreyfingum í lista- og hönnunarsögu póstmódernismans og hugtökum sem tengjast faginu
  • hvernig áherslaní listum færðist frá áþreifanleika til hugmyndar
  • tengslumheimspeki og mótandi áhrifum hennar á listasögu
  • þróun hugmynda og menningar í samhengi við samfélagsgerð, umhverfisþætti og tækniframfarir tímabilsins
  • hvernig þjóðfélagslegar og hugmyndafræðilegar forsendur hafa áhrif á viðfangsefni og vinnuaðferðir í listsköpun og hönnun tímabilsins
  • menningarlegu og efnahagslegu gildi lista og hönnunar

 

Leikniviðmið  

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nýta sér fjölbreytta miðla við upplýsingaleit, þekkingaröflun og framsetningu verkefna.
  • vinna verkefni á sjálfstæðan og skapandi hátt
  • taka þátt í samræðum og samstarfiaf sanngirni, virðingu og tillitssemi

  

Hæfniviðmið  

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:   

  • fjalla um og meta viðfangsefni áfangans á upplýstanog gagnrýnin hátt og nota faghugtök í umfjöllun sinni.
  • bera saman, finna tengsl og draga ályktanir af listasögunni ogáhrifumlistsköpunar á samfélagið á hverjum tíma. 
  • setja listasöguna í menningarlegt og félagslegt samhengi og gerasér grein fyrir áhrifum þessara þátta á listir og hönnun.
Getum við bætt efni síðunnar?