LISA3ME05 - Lista- og hönnunarsaga: Metamódernismi
Lýsing
Nemandinn kynnir sér þróun alþjóðlegrar myndlistar og hönnunar frá síðari hluta 20. aldar til samtímans auk sérstöðu Íslands á tímabilinu. Helstu þræðir lista- og hönnunarsögunnar eru raktir og settir í samhengi við samfélagsbreytingar á hverjum tíma. Nemandinn skoðar hvernig fyrri hugmyndum um eðli og hlutverk listar er kollvarpað og rýnir í fjölþætt efnistök, tækni og aðferðir í tengslum við það. Hann eflir skilning sinn á því sem er í gangi í myndlist og hönnun samtímans. Nemandinn kynnist helstu verkum tímabilsins og þeim hugmyndum sem liggja að baki.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu stefnum og einkennum í lista- og hönnunarsögu póst-og metamódernismans og hugtökum sem tengjast faginu
- fjölbreytileika í listsköpun tímabilsins, nýjummiðlumsem notast er við til að koma hugmyndum á framfæri og þáttum sem liggja til grundvallar þessum margbreytileika
- tengslumheimspeki og mótandi áhrifum hennar á listasögu
- þróun hugmynda og menningar í samhengi við samfélagsgerð, umhverfisþætti og tækniframfarir tímabilsins
- hvernig þjóðfélagslegar og hugmyndafræðilegar forsendur hafa áhrif á viðfangsefni og vinnuaðferðir í listsköpun og hönnun tímabilsins
- menningarlegu og efnahagslegu gildi lista og hönnunar
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nýta sér fjölbreytta miðla við upplýsingaleit, þekkingaröflun og framsetningu verkefna.
- vinna verkefni á sjálfstæðan og skapandi hátt
- taka þátt í samræðum og samstarfiaf sanngirni, virðingu og tillitssemi
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- fjalla um og meta viðfangsefni áfangans á upplýstanog gagnrýnin hátt og nota faghugtök í umfjöllun sinni.
- bera saman, finna tengsl og draga ályktanir af listasögunni ogáhrifum listsköpunar á samfélagið á hverjum tíma.
- setja listasöguna í menningarlegt og félagslegt samhengi og gerasér grein fyriráhrifum þessara þátta á listir og hönnun.