Fara í efni

LISA2MÓ05 - Lista- og hönnunarsaga: Módernisminn og áhrif hans

Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Nemandinn kynnir sér tilkomu og áhrif módernismans í listum og hönnun, á heimsvísu sem og á Íslandi. Hann eflir skilning sinn á helstu þráðum lista- og hönnunarsögunnar á þeim tíma og setur í samhengi við samfélagsbreytingar. Nemandi eykur skilning sinn á því hvernig tímabilið hafði áhrif á þróun nútímalistar og hönnunar þar sem áhersla er lögð verkið sjálft, abstrakt hugmyndir og úrvinnslu þeirra. Hann kynnist jafnframt helstu verkum tímabilsins og hvernig iðnvædd borgarmenning varð drifkraftur í listum og opnaði aðgengi að þeim.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: 

  • helstu stefnum og stíleinkennum í lista- og hönnunarsögu á tímum módernismans og helstu hugtökum semtengjast faginu
  • hvernig samþættinglista og hönnunar jókst og afbygging varð á stigveldi innan listanna
  • tengslum heimspeki og mótandi áhrifum hennar á listasögu
  • þróun hugmynda og menningar í samhengi við samfélagsgerð, umhverfisþætti og tækniframfarir tímabilsins
  • hvernig þjóðfélagslegar og hugmyndafræðilegar forsendur hafa áhrif á viðfangsefni og vinnuaðferðir í listsköpun og hönnun tímabilsins
  • menningarlegu og efnahagslegu gildi lista og hönnunar

Leikniviðmið  

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nýta sér fjölbreytta miðla við upplýsingaleit, þekkingaröflun og framsetningu verkefna.
  • vinna verkefni á sjálfstæðan og skapandi hátt
  • taka þátt í samræðum og samstarfi af sanngirni, virðingu og tillitssemi

  Hæfniviðmið  

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:   

  • fjalla um og meta viðfangsefni áfangans á upplýstan og gagnrýnin hátt og nota faghugtök í umfjöllun sinni.
  • bera saman, finna tengsl og draga ályktanir af listasögunni og áhrifum listsköpunar á samfélagið á hverjum tíma. 
  • setja listasöguna í menningarlegt og félagslegt samhengi og gera sér grein fyrir áhrifum þessara þátta á listir og hönnun.
Getum við bætt efni síðunnar?