LISA1HB05 - Listasaga frá hellamálverkum fram að iðnbyltingu
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Nemandinn kynnir sér helstu stílbrigði og þróun í lista- og hönnunarsögu, á heimsvísu sem og á Íslandi, frá öndverðu fram að iðnbyltingu. Hann eflir skilning sinn á eðli þeirra þátta sem mótað hafa listsköpun mannsins í gegnum tíðina í tengslum við samfélagslegan veruleika. Nemandinn kynnist helstu verkum tímabilsins og eykur við þekkingu sína á ólíku hlutverki listarinnar frá forsögulegum tíma þar til sá grunnur sem vestræn list byggir á var lagður.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu stefnum og stíleinkennum í lista- og hönnunarsögu frá hellamálverkum fram að iðnbyltingu og helstu hugtökum sem tengjast þeim
- Hvernig tilgangur listarinnar breyttist frá því að vera í tengslum við æðri öfl og yfirvald til mannhyggju.
- tengslum heimspeki og mótandi áhrifum hennar á listasögu
- þróun hugmynda og menningar í samhengi við samfélagsgerð, umhverfisþætti og tækniframfarir tímabilsins
- hvernig þjóðfélagslegar og hugmyndafræðilegar forsendur hafa áhrif á viðfangsefni og vinnuaðferðir í listsköpun og hönnun tímabilsins
- menningarlegu og efnahagslegu gildi lista og hönnunar
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nýta sér fjölbreytta miðla við upplýsingaleit, þekkingaröflun og framsetningu verkefna.
- vinna verkefni á sjálfstæðan og skapandi hátt
- taka þátt í samræðum og samstarfi af sanngirni, virðingu og tillitssemi
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- fjalla um og meta viðfangsefni áfangans á upplýstan og gagnrýnin hátt og nota faghugtök í umfjöllun sinni.
- bera saman, finna tengsl og draga ályktanir af listasögunni og áhrifum listsköpunar á samfélagið á hverjum tíma.
- setja listasöguna í menningarlegt og félagslegt samhengi og gera sér grein fyrir áhrifum þessara þátta á listir og hönnun.