Fara í efni

LIME2ML05 - Menningarlæsi

Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Nemandinn fær innsýn í menningarsöguna og hvernig þróun og víxlverkun listgreina og samfélags móta þann nútíma sem við lifum í. Nemandinn kynnist forsendum skynjunar mannsins og margvíslegum möguleikum hans til listrænnar tjáningar. Nemandinn kannar fagurfræðilegar og hugmyndafræðilegar forsendur lista og hvernig þróun þeirra tengist breytingum samfélagsins á hverjum tíma. Nemandinn rannsakar þætti sem snúa að skynhrifum. Hann vinnur verkefni þar sem hann kannar mismunandi listgreinar, tengsl þeirra innbyrðis og ólík stíltímabil. 

 

Þekkingarviðmið 

Nemandinn skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: 

  • mikilvægi allrar listsköpunar í samfélaginu og hvernig stefnur og straumar í listum taka sífellt breytingum
  • hvernig samfélagsbreytingar, trúarbrögð, tækniframfarir, þróun í vísindum og stjórnmál hafa áhrif á listir, skynjun og sköpun 
  • samspili ólíkra listgreina og hvernig þær hafa áhrif hver á aðra
  • fræðilegum þáttum sem tengjast listum og eðli skynjunar

 

Leikniviðmið 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að: 

  • opna hugann og horfa vítt hvað varðar menningu og listir í samfélaginu 
  • fjalla um listir og menningu 
  • vinna úr þekkingu og skrásetja á skipulagðan hátt
  • setja listir í menningarlegt og sögulegt samhengi

 

Hæfniviðmið 

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: 

  • meta, greina og skynja listir og hönnun út frá eigin forsendum og annarra 
  • ræða álitamál um skynjun og fjalla um listviðburði og fyrirlestra á gagnrýninn og sjálfstæðan hátt og rökstyðja mál sitt 
  • sýna sjálfstæði við útfærslu og túlkun verkefna og beita mismunandi aðferðum í framsetningu verkefna sinna
Getum við bætt efni síðunnar?