Fara í efni

LÍFS1US02S - Lífsleikni með áherslu á skólabrag og samfélag

Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Áfangalýsing:

Markmið áfangans er að kynna nemandanum innviði skólans, námsval, starfshætti, nám og félagslíf. Nemandinn er búinn undir þáttöku í samfélaginu með því að efla félagsfærni og siðferðiskennd. Lögð er áhersla á að efla samskipti og jákvæða lífssýn nemandans sem auðveldar honum að takast á við kröfur og áskoranir daglegs lífs. Jafnframt er lögð áhersla á að gera nemandann meðvitaðan um þá ábyrgð sem hann hefur gagnvart sjálfum sér og skólasamfélaginu. Í áfanganum er stuðlað að styrkingu félagstengsla milli nemanda og þeir búinr undir að takast á við krefjandi nám og leggja þannig grunn að frjóu menntasamfélagi. Nemandinn eflist í að koma fram af virðingu við aðra í fjölbreyttu þjóðfélagi. Nemandinn fær tækifæri til að vinna við margvísleg viðfangsefni á fjölbreyttan og skapandi hátt. Um er að ræða verkefnabundið nám með áherslu á samvinnu og frumkvæði.

Markmið:

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • kröfur sem gerðar eru í námi í framhaldsskóla
  • þýðingu þess að lifa í samfélagi við aðra
  • framtíðarmöguleikum sínum
  • mikilvægi markmiðarsetningar og leiðum að settum markmiðum
  • skólasamfélaginu, námsvali og stoðþjónustu

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • bera virðingu fyrir sjálfum sér
  • sýna umburðarlyndi, samhyggð og virðingu fyrir öðrum
  • tjá sig í töluðu og rituðu máli
  • verða betur meðvitaður um sjálfan sig, áhugasvið sitt og styrkleika
  • leita upplýsinga um nám sitt

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • auka færni sína í mannlegum samskiptum
  • meta eigin vinnubrögð
  • bæta ákvörðunartöku í daglegu lífi
  • taka þátt í samfélagi í sífelldri þróun
  • Bera ábyrgð á eigin námi
Getum við bætt efni síðunnar?