LÍFS1SU02Z - Lífsleikni með áherslu á eflingu sjálfsmyndar
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Markmið áfangans er vinna með heildarhugmynd nemandans um sjálfan sig. Unnið verður með sjálfsmynd í víðu samhengi með sérstakri áherslu á áhugamál og styrkleika.
Markmið:
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- sjálfsmynd sinni í víðu samhengi
- eigin tilfinningum og skoðunum
- styrkleikum sínum og veikleikum
- gildum sínum til lífsins
- mikilvægi sjálfstæðis og sjálfsábyrgðar í lýðræðissamfélagi
- áhugasviði sínu
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- efla sjálfsmynd sína
- átta sig á eigin styrkleikum og áhugamálum
- nýta gildin sín í samskiptum við aðra
- taka þátt í umræðum í tengslum við eigin líðan
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta styrkleika sína í daglegu lífi
- skilja mikilvægi þess að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
- spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- að axla ábyrgð á sjálfum sér innan og utan skólasamfélagsins