Fara í efni

LÍFS1SB02S - Nýnemafræðsla og lífsleikni 2

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Markmið áfangans er að kynna nemandanum innviði skólans, námsval, starfshætti, nám og félagslíf. Nemandinn er búinn undir þátttöku í samfélaginu með því að efla félagslega færni og siðferðiskennd. Lögð er áhersla á að efla samskipti og jákvæða lífssýn nemandans sem auðveldar honum að takast á við kröfur og áskoranir daglegs lífs. Jafnframt er lögð áhersla á að gera hann meðvitaðan um þá ábyrgð sem hann hefur gagnvart sjálfum sér og skólasamfélaginu. Í áfanganum er stuðlað að styrkingu félagstengsla milli nemenda og þeir búnir undir að takast á við krefjandi nám og leggja þannig grunn að frjóu menntasamfélagi. Nemandinn eflist í að koma fram af virðingu við aðra í fjölbreyttu þjóðfélagi. Nemandinn fær tækifæri til að vinna við margvísleg viðfangsefni á fjölbreyttan og skapandi hátt. Um er að ræða verkefnabundið nám með áherslu á samvinnu og frumkvæði

Markmið:

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • kröfum sem gerðar eru í námi í framhaldskóla 
  • þýðingu þess að lifa í samfélagi við aðra 
  • framtíðarmöguleikum sínum 
  • mikilvægi markmiðasetningar og leiðum að settum markmiðum 
  • skólasamfélaginu, námsvali og stoðþjónustu 

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • bera virðingu fyrir sjálfum sér 
  • sýna umburðarlyndi, samhyggð og virðingu fyrir öðrum 
  • tjá sig í töluðu og rituðu máli 
  • verða betur meðvitaður um sjálfan sig, áhugasvið sitt og styrkleika 
  • leita upplýsinga um nám sitt 

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • auka færni sína í mannlegum samskiptum 
  • meta eigin vinnubrögð 
  • bæta ákvörðunartöku í daglegu lífi 
  • taka þátt í samfélagi sem er í sífelldri þróun 
  • bera ábyrgð á eigin námi 
Getum við bætt efni síðunnar?