Fara í efni

LÍFS1LM01S - Lífsleikni með áherslu á lýðræði og mannréttindi

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum er áhersla á lýðræði og mannréttindi og verða aðstæður og umhverfi ungs fólks skoðað í fjölbreyttu samhengi. Nemendur eru hvattir til að velta fyrir sér hugtakinu lýðræði og að taka afstöðu til siðferðilegra álitamála s.s. mannréttinda, samábyrgðar, meðvitundar og virkni borgara við að móta samfélag sitt og hafa áhrif á það.   

Markmið:

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hugtökunum lýðræði og mannréttindi 
  • mikilvægi sjálfstæðis og sjálfsábyrgðar í lýðræðissamfélagi 
  • að allir hafa hæfileika og möguleika til þroska 
  • að í lýðræðisríki þurfa borgarar að búa við mannréttindi og komast að samkomulagi 
  • fjölbreytileika 
  • eigin tilfinningum og skoðunum 

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita gagnrýninni hugsun 
  • virða skoðanir annara 
  • taka þátt í umræðum 
  • láta skoðanir sínar í ljós

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja þá hugsun sem felst í hugtökunum lýðræði og mannréttindi 
  • spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annara af víðsýni 
  • átta sig á tengingu milli réttinda og skylda 
  • átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum 
  • taka þátt í lýðræðissamfélagi á virkan og ábyrgan hátt
Getum við bætt efni síðunnar?