LÍFS1ÍL01Z - Lífsleikni með áherslu á lífsviðhorf
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Markmið áfangans er að vinna með samhengi ímyndar, lífsstíls og lífsskoðunar. Skoðaðar verða fyrirmyndir ungmenna, hvernig þær endurspeglast í ýmsum miðlum og geta haft áhrif á eigin viðhorf.
Markmið
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hvað hver og einn getur gert til að líða betur
- sjálfsmynd sinni og hvernig hún mótast og breytist
- hvernig fyrirmyndir geta haft góð og slæm áhrif á líf okkar og líðan
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tileinka sér heilbrigðan og jákvæðan lífsstíl
- kynna sér og segja persónum sem vilja vera fyrirmyndir annarra
- velja sér jákvæðar fyrirmyndir
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- lifa heilbrigðu líferni
- hlusta á skoðanir annarra og geta endurskoðað sínar eigin skoðanir þegar kemur að heilbrigðu líferni og lífsviðhorfi