LÍFS1HN01S - Lífsleikni með áherslu á heilbrigði og velferð
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Áhersla er á andlegt, líkamlegt og félagslegt heilbrigði. Einnig er unnið með samspil einstaklings, aðstæðna og umhverfis. Notast verður við atburði líðandi stundar sem umræðuefni og sögulegar staðreyndir. Megin áhersla verður á að nemandinn viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem hann þegar býr að.
Markmið:
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi þess að nýta hæfileika sína
- mikilvægi þess að borða hollt og gott
- mikilvægi hreyfingar og hvíldar
- hugtökunum hollusta, hvíld, hreyfing, hreinlæti, hamingja og hugrekki
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skoða og meta eigið heilbrigði og eigin velferð
- vinna með öðrum
- taka tillit til annarra
- sýna samkennd
- taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vera meðvitaður um styrkleika sína
- spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- tileinka sér jákvætt hugarfar
- auka eigið heilbrigði og velferð