Fara í efni

LÍFS1FT01Z - Lífsleikni með áherslu á framkomu og tjáningu

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Markmið áfangans er að efla félagslega færni nemandans í skóla, starfi og í samfélaginu. Áhersla er lögð á framkomu og tjáningu, kurteisi í samskiptum og að virða skoðanir og gildi annarra. Einnig er lögð áhersla á að nemandinn sé meðvitaður um þá ábyrgð sem hann hefur gagnvart sjálfum sér og öðrum í skóla, starfi og samfélaginu.  

Markmið:

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: 

  • mikilvægi góðra og jákvæðra samskipta
  • að virða ólíkar skoðanir og gildi annarra
  • mikilvægi þess að koma fram af heillindum í samskiptum við aðra

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að: 

  • að eiga góð samskipti við aðra
  • að virða skoðanir og gildi annarra
  • tjá sig af öryggi

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tjá sig og skoðanir sínar af öryggi
  • sýna ábyrgð í samskiptum og framkomu
  • sýna fólki kurteisi og virðingu þrátt fyrir ólíkar skoðanir og gildi
Getum við bætt efni síðunnar?