Fara í efni

LÍFS1ES02Z - Lífsleikni með áherslu á samskipti

Undanfari : LÍFS1ES02Z
Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Markmið áfangans er að efla félagslega færni nemandans í skóla, starfi og í samfélaginu. Með áherslu á samskipti, sjálfsöryggi og að hann virði skoðanir og lífsgildi annarra. Einnig að nemandinn verði meðvitaður um þá ábyrgð sem hann hefur gagnvart sjálfum sér og öðrum í skóla, starfi og samfélaginu.

Markmið:

Þekkingarviðmið – Nemandinn skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi góðra/jákvæðra samskipta og samskiptaleiða bæði í skóla, starfi og samfélaginu
  • að fólk tjáir sig með mismunandi hætti
  • að virða ólíkar skoðanir og lífgildi annarra

Leikniviðmið – Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:

  • eiga í góðum/jákvæðum samskiptum við annað fólk
  • virða skoðanir og lífsgildi annarra
  • gera sér grein fyrir ábyrgð sinni í samskiptum og gjörðum

Hæfniviðmið – Nemandinn skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vera í góðum og jákvæðum samskiptum við annað fólk í samfélaginu
  • sýna fólki virðingu þrátt fyrir ólíkar skoðanir og lífsgildi
  • sýna ábyrgð í samskiptum, bæði rafrænt og í verki
Getum við bætt efni síðunnar?