LÍFS1EN02Z - Lífsleikni með áherslu á einstaklinginn og nærsamfélagið
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Markmið áfangans er að kynna nemandanum aðstæður og umhverfi ungs fólks í fjölbreyttu samhengi.Áhersla verður lögð á að nemandinn kynnist helstu tilboðum og tækifærum til afþreyingar í nærsamfélaginu.
Markmið:
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þeirri afþreyingu sem er í boði hverju sinni
- hvernig hægt er að taka þátt ef vilji er fyrir hendi
- hvert skuli leita upplýsinga um það sem í boði er
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nýta sér þau tækifæri sem eru hverju sinni til að njóta þeirrar afþreyingar sem í boði er
- nýta sér styrkleika sína til að nálgast ný viðfangsefni
- njóta tómstunda ýmist einn eða með öðrum
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- auðga lífið með því að geta sótt afþreyingu/viðburði í nærsamfélaginu hverju sinni
- fara út fyrir þægindarammann og prófa eitthvað nýtt