Fara í efni

LÍFS1DM02Z - Lífsleikni með áherslu á dægurmál og menningu

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Markmið áfangans er að nemendur fái tækifæri til að kynna sér og fjalla um ýmis dægurmál og menningu sem upp kunna að koma hverju sinni. Litið verður á skólasamfélagið, nærsamfélagið, landið allt og alþjóðasamfélagið.

Markmið:

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: 

  • umræðu og fréttum  hvers tíma 
  • helstu samfélagslegum málefnum sem varða skólasamfélagið, nærsamfélagið, landiðog alþjóðasamfélagið
  • ólíkum sjónarhornum og áherslum sem birtast í opinberri umræðu og fjölmiðlum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að: 

  • fylgjast með þeirri umfjöllun sem er í gangi á hverjum tíma 
  • afla sér upplýsinga úr fjölbreyttum miðlum og bera saman ólíkar heimildir
  • taka þátt í umræðum á málefnalegan og uppbyggilegan hátt

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: 

  • skilja samhengi umræðna í víðum skilningi 
  • mynda sér rökstudda skoðun á dægurmálum
  • tengja umræðu og fréttir við eigið líf, samfélag og samtímann
Getum við bætt efni síðunnar?