LÍFF1NF01Z - Næringarfræði með áherslu á hollustu og lífsstíl
Lýsing
Í áfanganum er fjallað um mikilvægi góðrar næringar til að tryggja heilbrigði og velferð. Áhersla er lögð á hvernig gott mataræði er samsett og úr hvaða fæðutegundum orkuefni, steinefni og vítamín fást. Hvernig á að velja saman fæðutegundir svo mataræði geti talist hollt og nota fæðuhringinn til þess. Hver eru næringarefnin sem eru lífsnauðsynleg og hvert er hlutverk þeirra í efnaskiptum líkamans? Hverjar eru ráðleggingar Embættis landlæknis um mataræði? Nemendur leysa verkefni á sjálfstæðan hátt en einnig í samvinnu við aðra.
Markmið:
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hver eru lífsnauðsynlegu orkuefnin, steinefnin og vítamínin
- hvaða fæðutegundir innihalda lífsnauðsynleg næringarefnin
- mikilvægi hollrar næringar til vaxtar og þroska
- fæðuhringnum og notkun hans við samsetningu fæðunnar
- ráðleggingum um mataræði gefnarútaf Embætti landlæknis
- eigin ábyrgð á aðvelja holla fæðu
- að fæðuval hvers og eins er þeirra einkamál og mismunandi lífstíll getur kallað á mismunandi fæðuval
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- setja saman máltíð úr öllum fæðuflokkunum
- lesa utan á umbúðir, sjá hvaða næringarefni eru í vörunni og úr hvaða fæðuflokkum
- skoða eigin neysluvenjur
- átta sig á mismunandi orkugildi fæðutegunda
- skrá eigin neyslu og skoða hana með ráðleggingar Embættis landlæknis sem viðmið.
- gera tillögur til bættra neysluvenja fyrir sig
- vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra nemendur
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- lesa og nýta sér ráðleggingar Embættis landlæknis til að temja sér heilbrigt mataræði
- gera sér grein fyrir hvaðan lífsnauðsynlegu næringarefnin koma
- átta sig á hvernig hollt mataræði er samsett
- sýna öðrum virðingu, umburðarlyndi og vera fær um ýmiskonar samvinnu
- nýta eiginhæfileika og frumkvæði til að tileinka sér ábyrga neyslu til að tryggja eigin velferð
- skipuleggja eigin mataræði með hollustu að leiðarljósi