LÍFF1NF01S - Næringarfræði
Lýsing
Áfangalýsing:
Í áfanganum er fjallað um mikilvægi góðrar næringar til að tryggja heilbrigði og velferð. Áhersla er lögð á hvernig gott mataræði er samsett og úr hvaða fæðutegundum orkuefnin, steinefnin og vítamínin fást. Fjallað verður um val á fæðutegundum svo mataræði geti talist hollt og fæðuhringurinn nýttur til þess. Einnig verður fjallað um hver eru lífsnauðsynleg næringarefnin og hlutverk þeirra í efnaskiptum líkamans. Farið verður yfir ráðleggingar Embættis landlæknis um mataræði. Verkefni áfangans leysa nemendur á sjálfstæðan hátt, einstaklingslega, í paravinnu og í hópum.
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- lífsnauðsynlegum orkuefnum, steinefnum og vítamínum
- þeim fæðutegundum sem innihalda lífsnauðsynleg næringarefnin
- mikilvægi hollrar næringar til vaxtar og þroska
- fæðuhringnum og notkun hans við samsetningu fæðunnar
- ráðleggingum um mataræði sem Embætti landlæknis gefur út
- eigin ábyrgð á hollu og góðu fæðuvali.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- setja saman máltíð úr öllum fæðuflokkunum
- lesa á umbúðir til að sjá hvaða næringarefni eru í vörunni og úr hvaða fæðuflokkum
- skoða eigin neysluvenjurátta sig á mismunandi orkugildi fæðutegunda
- skrá eigin neyslu og skoða hana með tilliti til ráðlegginga Embættis landlæknis
- bæta neysluvenjur sínar
- vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra nemendur.
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vera meðvitaður um hollustu þess sem hann neytir og áhrif þess á líkamann
- gera sér grein fyrir hvaðan lífsnauðsynleg næringarefnin koma
- temja sér hollt mataræði að tryggja að fá öll næringarefnin úr fæðunni
- nýta sér ráðleggingar Embættis landlæknis til að temja sér heilbrigt og gott mataræði
- sýna öðrum virðingu, umburðarlyndi og vera fær um ýmis konar samvinnu
- nýta eigin hæfileika og frumkvæði til að tileinka sér ábyrga neyslu til að tryggja eigin velferð
- skipuleggja eigin mataræði með hollustu að leiðarljósi.