Fara í efni

KYNJ2KJ05 - Kynjafræði

Markmið áfangans er kynja – og jafnréttisfræðsla. Fjallað er um sögu jafnréttisbaráttu á Íslandi og stöðu jafnréttismála í dag; karl – og kvenmennsku, fjölmiðla, klám, klámvæðingu, kynbundið ofbeldi, stjórnmál, baráttu hinsegin fólks og margt fleira. Ýmsar birtingarmyndir kynjakerfisins skoðaðar og greindar. Lögð er áhersla á umræður og lýðræðislega nálgun í kennslunni, nemendur eru hvattir til að temja sér gagnrýna hugsun, vera virkir og hafa áhrif á efnisþætti áfangans. Áfanginn byggir á virkni og þátttöku nemenda þar sem reynir á sjálfskoðun, greiningu á umhverfi sínu og umræðum um eigin viðhorf og annarra.

Getum við bætt efni síðunnar?