ITEI1GB05A - Iðnteikning háriðna 1
Í boði
: Ekki alltaf
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Nemandinn kynnist grunnþáttum í teikni-, lita- og formfræðum. Teiknuð verkefni með mismunandi blýjum og aðferðum. - teiknuð andlit og hárgreiðslur sem byggja á reglu gullinsniðs. Litafræði Ittens kynnt. - gerður samanburður við litastjörnu í hári og verkefni unnin sem tengjast bæði litafræði og hársnyrtinámi. Formfræði skoðuð og sett í samhengi við klippingar og greiðslur. Nemandi þjálfaður í efnis-, upplýsinga- og heimildaöflun, auk varðveislu gagna. Lagður grunnur að námsbók sem sýnir verkefnavinnu og námsframfarir nemanda.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mismunandi blýjum og teikniaðferðum.
- fjarvídd og skyggingum.
- gullinsniði.
- litafræði Itten.
- grunnformum.
- mismunandi leiðum og nálgun á heimildaleit og varðveislu gagna.
- námsbók.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- þekkja eiginleika mismunandi blýja.
- skyggja og ná fram fjarvídd í teikningu samkvæmt fyrirmynd.
- nýta gullinsniðsregluna í teikningu og formfræði.
- leita að og varðveita gögn og heimildir hvort sem er á veraldarvefnum eða með hugmyndabók.
- safna gögnum og setja upp í námsbók.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skynja og sjá tengsl milli þess sem hann sér sem fyrirmynd og verkefna sem unnin eru.
- ná fram áhrifum, formútfærslum og formgerðum ásamt áferðum fyrirmyndar í verkefnum með mismunandi aðferðum.
- geta valið sér ákjósanlega leið í varðveislu gagna og framsetningu á efni, bæði á rafrænu og áþreifanlegu formi.
Símat.