Fara í efni

ÍSLE3NN05 - Sagnir fyrr og nú: Goðafræði og þjóðsögur

Undanfari : ÍSLE2KB05
Í boði : Ekki alltaf

Lýsing

Í þessum áfanga verður fjallað um sagnaarf Íslendinga í formi goð- og þjóðsagna. Textar af ýmsum gerðum lesnir, greindir og tengdir við það umhverfi sem þeir spretta úr og áhrif þeirra á aðra texta rædd. Jafnframt verða skoðuð ýmis nútímaverk sem sækja efnivið sinn í eða spretta úr þessum sagnaarfi. Kenningar um munnlega hefð kynntar. Nemendur verða þjálfaðir í notkun bókmenntahugtaka og heimildavinnu, auk þess sem þeir kynna sér fræðilegar greinar sem tengjast efninu. Áhersla lögð á fjölbreytt og skapandi verkefni sem reyna á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og mismunandi hæfni nemenda, auka víðsýni og gagnrýna hugsun. Nemendur vinna ýmist hver fyrir sig eða með öðrum.

Einingar 5

Þekkingarviðmið

  • upphafi íslenskrar ritmenningar
  • munnlegri geymd
  • mismunandi tegundum texta og ólíkri miðlun þeirra, áhrifum og túlkun
  • íslenskri menningu, úr hverju hún sprettur og tengslum hennar við útlönd
  • þjóðsagnafræðum
  • áhrifum menningararfsins á nútímaverk
  • tengslum norrænnar goðafræði við evrópskar goðsögur
  • algengustu stílbrögðum sem einkenna goðsögur og þjóðsögur
  • uppbyggingu goðsagna og þjóðsagna
  • samfélagi, hugmyndafræði og viðhorfum miðaldamanna til heiðins átrúnaðar
  • heimildanotkun í tengslum við verkefnavinnu og gildi mismunandi heimilda
  • orðaforða sem þarf til að lesa í ólíkar heimildir

Leikniviðmið

  • lesa ýmsa bókmenntatexta frá ólíkum tímum sér til gagns og gamans og geta fjallað um inntak þeirra
  • greina áhrif menningararfsins á nútímaverk
  • beita algengum stílbrögðum í tal- og ritmáli
  • skilja lykilhugtök og mismunandi sjónarhorn í bókmenntum
  • draga saman og nýta á viðurkenndan og gagnrýninn hátt upplýsingar úr hvers kyns heimildum og meta áreiðanleika þeirra
  • ganga frá heimildaverkefnum og nýta sér uppbyggilega gagnrýni annarra til betrumbóta
  • flytja af öryggi lýsingar og kynningar á verkefnum sínum, hver fyrir sig og með öðrum

Hæfniviðmið

  • skilja, greina og tengja saman bókmenntatexta frá ólíkum tímum
  • skrifa skýran, vel uppbyggðan og grípandi texta
  • taka þátt í málefnalegum umræðum, tjá afstöðu sína og efasemdir um efnið og komast að rökstuddri niðurstöðu
  • draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta
  • átta sig á samfélagslegum og bókmenntasögulegum skírskotunum, duldum boðskap og hugmyndum
  • beita skýru, vönduðu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
  • velja ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
  • vinna skapandi verkefni í tengslum við námsefnið
  • nýta sér heimildir af ýmsum toga í tengslum við námsefni og verkefnavinnu
Getum við bætt efni síðunnar?