ÍSLE1VF04S - Íslenska - vættir, forynjur, þjóðsögur og ævintýri
Í boði
: Ekki alltaf
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Áfangalýsing:
Í áfanganum er unnið með færniþættina fjóra; tjáningu, læsi, hlustun og ritun. Nemendur kynnast vættum, forynjum, þjóðsögum og ævintýrum sem hluta af íslenskum menningararfi. Unnið er með sögur, texta og frásagnir í fjölbreyttu formi, meðal annars með lestri, hlustun, umræðum og skapandi verkefnum. Lögð er áhersla á skilning á boðskap sagna, persónum og uppbyggingu þeirra. Nemendur eru hvattir til að tjá eigin hugmyndir, skoðanir og sköpun í ræðu og riti.
Markmið:
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu einkennum þjóðsagna og ævintýra
- vættum og forynjum sem koma fyrir í íslenskum sögum
- persónum, atburðarás og boðskap í þjóðsögum og ævintýrum
- mikilvægi þjóðsagna og ævintýra í íslenskum menningararfi
Leiknviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- þekkja og segja frá völdum þjóðsögum og ævintýrum
- hlustaá oglesasögur og ræðaefniþeirra
- greinaeinfaldanmun á þjóðsögum og ævintýrum
- skrifaeðasegjafrástuttrisöguþarsemvættireðaforynjur koma viðsögu
- tjáhugmyndirsínar og upplifun á sögummeðeiginorðum
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- njóta þess menningararfs sem felst í þjóðsögum og ævintýrum
- tjá sig á skapandi og persónulegan hátt í ræðu og riti
- taka þátt í umræðum og bera virðingu fyrir skoðunum annarra
- nota íslensku til að miðla sögum, hugmyndum og upplifun