Fara í efni

ÍSLE1ÞÆ02Z - Íslenska - vættir, forynjur, þjóðsögur og ævintýri

Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum er unnið með færniþættina fjóra; tjáningu, læsi, hlustun og ritun. Nemendur kynnast vættum, forynjum, þjóðsögum og ævintýrum sem hluta af menningararfi okkar.

Markmið

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • boðskap sem birtist í þjóðsögum og ævintýrum
  • persónum í þjóðsögum og ævintýrum
  • vættum og forynjum í íslenskum sögum
  • mikilvægi þjóðsagna í menningararfi Íslendinga

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • þekkja nokkrar vel valdar þjóðsögur og ævintýri
  • segja frá og/eða skrifa stutt ævintýri/þjóðsögur þar sem vættir/forynjur koma við sögu
  • þekkja uppbyggingu ævintýra og þjóðsagna og muninn þar á milli

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • njóta þess menningararfs sem felst í þjóðsögum og ævintýrum
  • tjá sig um þjóðsögur/ævintýri á sinn hátt
Getum við bætt efni síðunnar?