Fara í efni

ÍSLE1TD02Z - Íslenska með áherslu á íslenska tónlist og textagerð

Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum er unnið með færniþættina fjóra; tjáningu, læsi, hlustun og ritun. Námsefnið byggir á íslenskri dægurtónlist og textum. Margvíslegar tónlistarstefnur og/eða tónlistarfólk kynnt til sögunnar.

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • innihaldi lagatexta
  • algengri uppbyggingu lagatexta og sérkennum þeirra
  • þekktu íslensku tónlistarfólki og helstu verkum þeirra
  • straumum og stefnum í íslenskri dægurlagamenningu

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • hlusta eftir innihaldi dægurlagatexta
  • skilja mun á ólíkum tónlistarstefnum
  • þekkja þekkt íslensk lög og hvaða tónlistarstefnum þau tilheyra

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • njóta íslenskrar dægurlagamenningar
  • gera sér grein fyrir hverskonar tónlist höfðar helst til hans
  • hlusta öðruvísi á tónlist
Getum við bætt efni síðunnar?