Fara í efni

ÍSLE1SK02Z - Íslenska með áherslu á bókmenntir, sakamálasögur/skáldsögur, íslenskar eða þýddar

Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum er unnið með færniþættina fjóra; tjáningu, læsi, hlustun og ritun. Unnið er með aldursmiðaðar bókmenntir á fjölbreyttan hátt. Ólíkar bókmenntagreinar s.s. smásögur, sakamálasögur og ástarsögur kynntar nemendum í þeim tilgangi að auka orðaforða og lesfærni.

Markmið

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • innihaldi og söguþræði sagna sem unnið er með
  • þeim heimi sem opnast með lestri/hlustun skáldsagna 
  • ólíkum gerðum bókmenntagreina

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • velja sér skáldsögu sem hentar áhugasviði
  • lesa/hlusta á mismunandi texta sér til gagns og gleði 
  • greina söguþráð og hápunkta í verkum sem tekin eru fyrir

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • njóta þess að lesa/hlusta sér til ánægju
  • spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra
  • geta leitað nýrra fanga í bókmenntum og sett í samhengi
Getum við bætt efni síðunnar?