Fara í efni

ÍSLE1LS04S - Land og saga

Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

ÁFANGALÝSING:

Meginmarkmið áfangans er að kynna nemendur fyrir hinum ýmsu atriðum er snúa að því sem gerir Ísland að Íslandi líkt og sögulegum stöðum, umhverfi, náttúru, jarðhræringum og veðri. Einnig verður litið til sögulegra atburða og þróunar sem voru undanfarar og/eða áhrifavaldar í mótun þess samfélags sem við búum í í dag.

Unnið verður markvisst að því að bæta lesskilning, málskilning og skilning á myndmáli. Jafnframt að efla málnotkun, hlustun, tjáningu, samræður og ritun.

MARKMIÐ:

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

· auknum orðaforða um Ísland og sögu þess

· helstu sögulegu stöðum á Íslandi

· helstu sögulegu atburðum Íslandssögunnar

· helstu veðurorðum og veðurmyndmáli

· landfræðilegum staðsetningum og náttúru Íslands

 

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

· auka les- og málskilning sinn

· beita mismunandi aðferðum til að túlka í ræðu og riti

· beita virkri hlustun og ná bæði aðal- og aukaatriðum

· skilja veðurmyndmál, veður- og jarðfræðihugtök

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

· geta lesið/hlustað sér til gagns og ánægju

· geta tjáð sig á mæltu og rituðu máli

· tekið þátt í samræðum og rökræðum

· geta skilið veður- og jarðfræðitengdar frétti

· átta sig á landfræðilegum staðsetningum

Getum við bætt efni síðunnar?