Fara í efni

ÍSLE1LO04S - Áhersla á leikið íslenskt efni og frasa

Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum er unnið með alla þætti íslenskunnar, einkum tjáningu, læsi og hlustun. Lögð verður áhersla á umfjöllun og kynn.ingu á ýmsu leiknu efni á íslensku og það skoðað á margvíslegan hátt. Nemendur kynnast fjölbreyttu efni sem gefið hefur verið út á Íslandi í gegnum árin, allt frá leikritum til gamanþátta úr samtímanum. Horft verður á áhrif menningar á tungumálið.

Markmið:

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ólíkum leiðum til samskipta og tjáningar
  • uppbyggingu og framsetningu ólíkra texta
  • mikilvægi þess að láta skoðanir sínar í ljós og bera virðingu fyrir skoðunum annarra

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • setja fram stutta og skýra texta
  • að taka þátt í umræðum og hlusta á sjónarmið annarra af virðingu
  • láta skoðanir sínar í ljós og rökstyðja þær
  • að nota ólíkar leiðir til tjáningar

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tjá sig í hóp og virða skoðanir annarra
  • leitast við að tileinka sér gagnrýna hugsun (spyrja spurninga) í upplýsingaöflun og tjáningu
  • geta rökstutt eigin skoðanir
Getum við bætt efni síðunnar?