Fara í efni

ÍSLE1LH02Z - Fjölmiðlar gervigreind hjálparforrit og fleira

Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum er unnið með færniþættina fjóra; tjáningu, læsi, hlustun og ritun. Fjölbreytt málefni líðandi stundar eru skoðuð í ýmsu samhengi. Stuðst er við fjölmiðla, gervigreind, hjálparforrit og fleira.

Markmið

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • málefnum líðandi stundar á eigin forsendum
  • forritum og öðru sem aðstoðað geta við nám
  • ólíkum gerðum fjölmiðla
  • samskiptum í hópi og á samfélagsmiðlum

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nýta sér og njóta þeirra fjölmiðla sem henta honum best
  • nota forrit/hjálparsíðurtilnáms 
  • tjá sig ummálefnilíðandi stundar

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • fylgjast með því sem er í umræðunni hverju sinni
  • nýta sér t.d. gervigreind til náms
  • tjá skoðanir sínar í ræðu og riti
Getum við bætt efni síðunnar?