Fara í efni

ÍSLE1LÆ02Z - Íslenska með áherslu á land og sögu í víðu samhengi

Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum er unnið með færniþættina fjóra; tjáningu, læsi, hlustun og ritun. Nemendur kynnast því hvað einkennir land og þjóð s.s. sögulegum stöðum, umhverfi, náttúru, jarðhræringum og veðri. Unnið er með læsi á fjölbreyttan hátt s.s. læsi á umhverfi og myndmál, t.d. veðurtákn.

Markmið

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • auknum orðaforða um Ísland og sögu þess
  • nokkrum sögulegu atburðum Íslandssögunnar
  • helstu hetjum Íslendingasagna
  • þeirri hættu sem stafar af náttúruvá á Íslandi
  • helstu veðurorðum og veðurtáknum

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa/hlusta og horfa sér til gagns 
  • afla sér upplýsinga um sögu lands og þjóðar með fjölbreyttum leiðum 
  • nýta sér aukinn orðaforða og þekkingu um Ísland og sögu þess í ræðu og riti
  • lesa út úr helstu veðurtáknum og nota veðurhugtök

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta lesið/hlustað og horft sér til gagns og ánægju
  • vera læs á umhverfi sitt
  • geta tjáð sig á mæltu eða rituðu máli og tekið þátt í samræðum
  • geta skilið veðurfréttir
Getum við bætt efni síðunnar?